Jan 25, 2012

Vestfjarðabrauð



Þessi uppskrift er eftir matgæðing vikunnar, Elísabetu Friðriku, sem er orðin yfir 90 sentimetrar á hæð og ber sig eftir því. Uppskriftin er einföld en ljúffeng og hráefnið má finna í öllum betri vegasjoppum Vestfjarða. Bláberin voru sótt upp í hlíðina við setrið á Ögri.

Uppskrift - fyrir 1
1 sneið samlokubrauð (má nota annað brauð)
1 matskeið jarðaberjasulta (þjóðrembur mega nota rabbarbarasultu)
1 sneið hangiálegg
2 sneiðar reyktur lax
Önnur sneið hangiálegg
2 bláber
1 dropi af sultu til skreytingar

Hráefnið er sett á í þeirri röð sem það er talið upp.

Njótið!

2 comments:

Gudrun Iris said...

Fenguð þið að smakka?

Tinna vinkona þín said...

Auðvitað. Og við ætlum að bjóða ykkur í svona brauð bráðlega.